NÁMSKEIÐ | VEFSÍÐUGERÐ

ÞÍN HUGMYND AÐ VERULEIKA MEÐ IDÉ

Námskeið sem hjálpar einstaklingum og fyrirtækjum að öðlast þekkingu í að hanna, setja upp og stjórna vefsíðu í Wordpress kerfinu, ásamt markaðssetningu á netinu!

INNIFALIÐ:

8 kennslustundir, 3 klst. í senn og tími ákveðinn sem hentar hverjum og einum.

1. Undirstöðuatriði
Farið er yfir grunndvallaratriði Wordpress, Avada, Shopify, Mailchimp, Facebook Business, Google Analytics og aðra lykilþætti sem tengjast vefsíðugerð. Nafn valið á vefsíðu, lén tryggt og tengt við hýsingu, gagnagrunnar undirbúnir, uppsetning á netföngum og vefsíðugrunnur frágengin á vinnusvæði fyrir næstu kennslustund.

2. Uppsetning á kerfum og viðbótum
Wordpress kerfið skoðað vel. Allar stillingar yfirfarnar svo að kerfið virki rétt. Þema valið og uppsett. Tengingar myndaðar við póstþjóna og póstform, greiðslugáttir tengdar ef við á, ásamt öðru svo kerfið sé tilbúið fyrir útlitshönnun í næstu kennslustund.

3. Hönnun á forsíðu
Mikilvægasta síðan hönnuð þar sem viðskipavinurinn eða notandinn lendir fyrst. Forsíðan þarf að vera aðlaðandi og notendavæn til að minnka líkur á að viðkomandi fari eitthvert annað í leit að þjónustu. Í þessari kennslustund er frumhönnun framkvæmd sem síðar er bætt við eftir að undirsíður og annað efni er tilbúið.

4. Hönnun á undirsíðum
Næsti hluti snýr að hönnun á undirsíðum og þær eru ekki síður mikilvægar og þurfa að vera vel gerðar og þægilegar í notkun. Gott máltæki er “less is more” og því gott að hafa það til hliðsjónar þegar maður er að hanna vefsíður.

5. Póstlistakerfi og lokafrágangur
Farið verður yfir aðra hluta vefsíðu, tengiliðaupplýsingar og annar lokafrágangur. Uppsetning á póstlistakerfi í Mailchimp. Farið yfir uppsetningu á sjálfvirkri svörun og markpóstum.

6. Umsjón með uppfærslum
Internetið er í stöðugri þróun og því mikilvægt að uppfæra vefi til að halda öryggi í hámarki. Í þessari kennslustund verður farið yfir hvernig er best að uppfæra vefinn og mikilvægi þess að taka afrit áður en uppfærslur er framkvæmdar.

7. Vefsíða sett í loftið
Hér er farið yfir allar helstu aðgerðir í að færa vefsíðu af vinnusvæði og setja hana í loftið. Það þarf að huga vel að allri virkni eftir flutning og ganga úr skugga um að allt virki rétt.

8. Google Analytics, markaðsleiðir og auglýsingar
Svo hægt sé að fylgjast vel með heimsóknum á vefsíðu og skoða árangur af auglýsingaherferðum er mikilvægt að þekkja Google Analytics kerfið. Í þessari kennslustund verður farið yfir viðmót google og vefsíða tengd við kerfið. Farið verðu yfir helstu auglýsingakerfi á samfélagsmiðlum svo að viðkomandi læri að koma sinni vefsíðu á framfæri á sem hagkvæmasta máta. Auglýsingar hannaðar og settar inn á helstu miðla Facebook, Instagram og fl. á netinu.

Vönduð kennslubók sem inniheldur alla þætti námskeiðis er afhent í upphafi sem gerir viðkomandi kleift að fylgjast vel með meðan á námskeiðinu stendur. Kennslubókin nýtist vel til upprifjunar þegar verið er að vinna í vefsíðugerð eftir að námskeiði lýkur. Mjög gott gagn fyrir fyrirtæki þar sem starfsmannavelta á sér stað og nýjir einstaklingar kom inn og taka við vefsíðu.

FYRIRKOMULAG

Námskeiðið er haldið á Suðurlandsbraut 30, 105 Reykjavík og Austurvegi 6, 800 Selfossi. Námskeiðin miðast við tvær kennslustundir í viku. Hafið samband ef óskað er eftir að kennsla fari fram í aðstöðu fyrirtækis sem keypt hefur námskeið fyrir starfsfólk.

Aðeins þrír eru í hverjum hóp og kennslan því mjög einstaklingsmiðuð.

Verðið fyrir námskeiðið er 390.000 kr m/vsk. og auðvelt að skipta greiðslum.
Innifalið er fullkláruð vefsíða með hönnun sjá sundurliðun:

Þú færð í raun námskeiðið frítt en greiðir fyrir þína eigin vefsíðu og hönnun!

Sæti í boði á þetta námskeið 6/6
SETJA Í KÖRFU

Námskeið er frá 5.-30.apríl 2021

Verðið fyrir námskeiðið er aðeins 390.000 kr m/vsk. og auðvelt að skipta greiðslum.
Innifalið er fullkláruð vefsíða með hönnun sjá sundurliðun:

Þú færð í raun námskeiðið frítt en greiðir fyrir þína eigin vefsíðu og hönnun!

Sæti í boði á þetta námskeið 6/6
SETJA Í KÖRFU

Námskeið er frá 5.-30.apríl 2021

Mörg stéttarfélög veita námsstyrki fyrir allt að 90% af heildaruppæð, en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir í boði fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Kannaðu hvort þú eigir rétt á styrk hjá þínu stéttarfélagi.

*Idé auglýsingastofa ehf. er rótgróinn stofa og hefur starfað á íslenskum markaði í fjölda ára. Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að fá tilboð í sérsniðin námskeið eða framleiðslu á markaðsefni fyrir þitt fyrirtæki.